27.9.2009 | 22:44
Hverju breytir þetta
Ég ákvað að skoða aðeins greiðsluseðla íbúðarlánanna minna. Það kom í ljós að núna 1. okt er afborgun númer 48/480. Ég er semsagt búinn að borga 10% af öllum þeim seðlum sem munu koma vegna lánsins sem ég sló vegna íbúðarkaupa minna.
Fyrir 4 árum stóð ég frammi fyrir þeirri ákvörðun að kaupa eða leigja húsnæði. Ég átti 4 millur sem átti að vera góð útborgun og ég valdi mér á endanum íbúð sem kostaði mig 18,65 millur eftir samningaþras.
Ég sló 2 lán 1 til 40 ára frá íbúðarlánasjóði sem mátti ekki lána meira en brunabótamatið.
og annað frá SPRON til 20 ára sem mátti lána það sem vantaði upp í 90% af kaupverði.
Í heildina eru þetta lán upp á 15 millur í nafnverði. Þetta þýðir að ég á 3,65 millur í hreinni eign í íbúðinni minni þegar ég kaupi hana. Restin af 4 milljónunum fór í lántökukostnað ofl.
En í dag eftir að áfallnar verðbætur eru komnar yfir 6 milljónir geri ég ekki ráð fyrir að eiga krónu í íbúðinni og í raun tel ég mig vera með neikvætt eigið fé bundið í íbúðinni.
Nú þegar 10% lánstímans er liðinn er ég búinn að greiða 4,2% af upprunalega höfuðstólnum á stóra láninu.
Og þegar 20% lánstímans af litla láninu er liðinn er ég búinn að greiða rétt tæp 14% af upprunalega höfuðstól lánsins.
Á þessum 4 árum hafa þó höfuðstólarnir hækkað um 6 millur.
Nú ætla þeir að færa aftur greiðslubyrðina niður um 17 mánuði. Ég er ekki alveg klár á því hversu marga þúsundkalla í svigrúm ég fæ við það en mig langar að spyrja að einu.
Nú er greiðslubyrði stóra lánsins 77.600kr á mánuði. Þar af eru 12.200kr sem fara í að greiða niður höfuðstól og restin eru vextir og verðbætur.
Þarf ég að lengja lánstímann til þess að minka greiðslubyrðina eða munu verðbæturnar frá því í mai 2008 verða afskrifaðar?
Nú er ég búinn að vera í háskólanámi í 3 af þeim 4 árum sem ég hef átt þessa íbúð. Þar af leiðandi hef ég ekki haft neitt aukalega á milli handanna til þess að greiða niður höfuðstól. Þó er ég búinn að greiða allla gjaldaga samviskusamlega. En ég hefði getað verið í helvíti dýrri leiguíbúð en samt brennt minni pening í vitlausu en í þessi 2 íbúðarlán.
Ég er kannski ekki í mikilli neyð, get ennþá greitt þó það verði þyngra og þyngra með hverjum mánuði en mér finnst rétt að fá leiðréttingu á eignarhaldi frekar en leiðréttingu á greiðslubyrði.
En ég er allavega reynslunni ríkari. Ég mun aldrei aftur taka verðtryggt annuitets lán. Það er eitthvað að ef eina leiðin til að komast í húsnæði sem maður hefur efni á er að taka slíkt fátækrargildrulán.
Kveða
Reiður Skuldari.
Greiðslubyrði lána færð aftur til maí 2008 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Tryggvi, það er tvennt við þetta: 1. Hvað borgaðir þú mikið af þessum lánum fyrir tveimur árum? 2. Ert þú með lánin nú þegar í greiðslujöfnun?
Höfum eitt á hreinu, að hjá fjölmörgum er hækkun greiðslu af lánum ekki svo mikil. Verðbæturnar bætast jú á höfuðstólinn og hækka því fyrst og fremst vextina. Til þess að losna við þessa hækkun vaxta, þá verður að leiðrétta höfuðstólinn.
Marinó G. Njálsson, 28.9.2009 kl. 00:08
Engin greiðsluaðlögun enþá hjá mér ég er að borga skv upprunalegu skilmálunum.
Tryggvi Þórhallsson, 28.9.2009 kl. 11:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.